Tveir lögreglumenn, fyrrum starfsmenn embættis sérstaks saksóknara, hafa verið kærðir til ríkissaksóknara vegna brots á þagnarskyldu. Fram kemur í yfirlýsingu frá embætti sérstaks saksóknara að mennirnir hafi látið þriðja aðila í té upplýsingar úr rannsókn máls sem þeir unnu að á sama tíma og þeir störfuðu fyrir sérstakan saksóknara. Þeir létu af störfum um síðustu áramót og hafa verið kærðir vegna þessa.

Eftirfarandi segir í yfirlýsingunni:

„Mennirnir komu til embættisins sem lánsmenn frá lögreglustjóranum á  höfuðborgarsvæðinu árið 2009 og unnu að rannsókn tiltekins máls þar til þeir hófu störf sem sjálfstæðir rannsakendur um síðustu áramót. Grunsemdir um brot mannanna tveggja vöknuðu eftir að þeir höfðu látið af störfum hjá sérstökum saksóknara. Skoðun embættisins leiddi síðan til kæru til embættis ríkissaksóknara sem fer nú með rannsókn málsins í samræmi við lögreglulög.

Þótt brotið sem tvímenningarnir eru kærðir fyrir sé litið alvarlegum augum hefur það ekki víðtæk áhrif á starfsemi embættisins þar sem þeir unnu að rannsókn á grundvelli tiltekinnar kæru. Þeim verjendum sem hlut eiga að máli hefur verið tilkynnt um grun um meint brot fyrrum lögreglumanna við embættið og um rannsókn ríkissaksóknara.