Tveir ungir aðstoðarverkstjórar hafa verið ráðnir til starfa í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Þetta eru þeir Árni Freyr Arngrímsson og Elvar Ingi Þorsteinsson. Þetta kemur fram í frétt Síldarvinnslunnar hf.

Árni er fæddur og uppalinn Akureyringur og er að ljúka sjávarútvegsnámi í Háskólanum á Akureyri. Hann hefur starfað á frystitogara Samherja við síldar- og makrílfrystingu síðustu sex sumur og starfaði auk þess sumarlangt í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Árni mun vinna að lokaritgerð sinni í sjávarútvegsnáminu í samvinnu við Síldarvinnsluna.

Elvar Ingi er Norðfirðingur og lauk námi í markaðsfræðum frá Háskólanum í Árósum í Danmörku árið 2014. Lokaverkefni hans fjallaði um uppsjávarafurðir á kínverskum markaði og var það unnið í samvinnu við Síldarvinnsluna. Elvar starfaði í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar á árunum 2010-2012 og var skipverji á Síldarvinnslutogurunum Bjarti og Barða á árunum 2014-2017.