Icelandair hefur ráðið þær Þórdísi Önnu Oddsdóttur og Ingibjörgu Lárusdóttur sem forstöðumenn hjá fyrirtækinu.

Þórdís Anna tekur við starfi forstöðumanns Onboard Retail and Service (Sala og þjónusta um borð) deildar Icelandair. Deildin heyrir undir sölu- og markaðssvið félagsins og annast þróun og rekstur alls sölustarfs og þjónustu um borð, þar á meðal Saga Shop Kitchen og Saga Shop Collection.

Þórdís Anna hefur lokið BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Georgia Institute of Technology.

Hún starfaði sem sérfræðingur í áhættustýringu hjá Straumi fjárfestingabanka, var ráðgjafi í innkaupastjórnun hjá Statoil Refining Denmark A/S, sinnti rannsóknarvinnu og kennslu í rekstrarverkfræði hjá Denmark Techniske Universitet og nú undanfarin tvö ár verkefnastjóri í rekstrarstýringu Icelandair.

Þórdís Anna er í sambúð með Henning Jónassyni, flugumferðarstjóra og á soninn Elías Atlason, 4 ára.

Ingibjörg Gísladóttir
Ingibjörg Gísladóttir

Ingibjörg hefur verið ráðin forstöðumaður Cabin Operations (Verkefni og starf áhafna) deildar Icelandair. Starfið felur í sér ábyrgð á meginverkefnum deildarinnar sem eru flugöryggismál, ábyrgð á þjálfun flugfreyja og flugþjóna, starfsmannamál flugfreyja og flugþjóna og framkvæmd þjónustu um borð í flugvélum félagsins.

Ingibjörg lauk BA prófi í lögfræði árið 2012 og meistara- og fullnaðarprófi í lögfræði 2014. Hún starfaði sem lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins um tveggja ára skeið frá janúar 2013-febrúar 2015 þegar hún tók við núverandi starfi sem forstöðumaður hjá Icelandair. Hún er ekki ókunn félaginu, en hún hafði starfað sem flugfreyja árin 1994-2014.
Ingibjörg býr í Garðabæ og á 4 börn.