Ágúst Sindri Karlsson og Loftur Bjarni Gíslason koma nýir í aðalstjórn Nýherja hf. en aðalfundur félagsins fór fram í dag.

Benedikt Jóhannesson er formaður stjórnar, Hildur Dungal og Marta Kristín Lárusdóttir voru einnig kjörin áfram í aðalstjórn. Þá var Guðmundur Jóh. Jónsson kjörinn í varastjórn félagsins.