Sjálfkjörið verður í stjórn Icelandair Group á næsta hluthafafundi félagsins, sem fram fer næsta miðvikudag, að því gefnu að samþykkt verði breyting á samþykktum, um að fækka aðalstjórnarmönnum Icelandair Group í fimm úr sjö. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Tveir nýir munu setjast í stjórn félagsins; Ásgeir Baldursson og Finnur Freyr Stefánsson.

Þeir hafa gefið kost á sér eru sem aðalmenn í stjórn Icelandair Group eru:

Ásgeir Baldursson
Einar Sveinsson
Finnur Reyr Stefánsson
Gunnlaugur M. Sigmundsson
Ómar Benediktsson

Og í varastjórn:

Sigurður Atli Jónsson, sem mun koma nýr inn í varastjórnina í stað Guðsteins Einarssonar
Martha Eiríksdóttir
Jón Benediktsson