Magnús Bjarnason og Jón Þorgeir Einarsson hafa tekið sæti í stjórn Icelandic Group. Magnús er framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar Landsvirkjunar og situr m.a. í stjórn Farice. Hann var áður framkvæmdastjóri Capacent Glacier og framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis en hann starfaði í utanríkisþjónustunni um árabil.