Þeir Gylfi Jónasson og Guðmundur Gunnarsson komu nýir inn í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða en ný stjórn var kjörin á aðalfundi samtakanna á Grand Hótel Reykjavíkur í síðustu viku. Guðmundur er jafnframt nýr varaformaður stjórnarinnar. Þeir koma inn í stjórnina í stað þeirra Guðrúnar Guðmannsdóttur og Þorbjörns Guðmundssonar sem láta af stjórnarstörfum.

Í stjórninni eru nú þau Gunnar Baldvinsson sem er formaður, Arnar Sigurmundsson, Ásgerður Pálsdóttir, Ásta Rut Jónasdóttir, Haukur Hafsteinsson, Heiðrún Jónsdóttir og Kristbjörg Stephensen. Arnaldur Loftsson var jafnframt kjörinn varamaður til þriggja ára og tekur við af Jóni G. Kristjánssyni.