Um áramótin tekur gildi nýtt skipurit Samskipa þegar skipulagsbreytingar ganga í gegn hjá félaginu. Millilandasvið leggst af og í stað þess koma þrjú ný svið, Rekstrarsvið, Innflutningssvið og Útflutningssvið. Fjármálasvið og Innanlandssvið haldast óbreytt.

Guðmundur Þór Guðmundsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Millilandasviðs, verður framkvæmdastjóri nýs Rekstrarsviðs. Þá verða Birgir Gunnarsson og Gunnar Kvaran, sem stýrt hafa innflutnings- og útflutningsdeildum Samskipa, framkvæmdastjórar Innflutningssviðs og Útflutningssviðs og taka sæti í framkvæmdastjórn.

Birgir Gunnarsson, nýr framkvæmdastjóri innflutningssviðs, hefur starfað hjá Samskipum frá 2008, síðast sem forstöðumaður innflutningsdeildar frá 2017. Þar áður var hann forstöðumaður Íslandsdeildar Samskipa í Hollandi og þar á undan viðskiptastjóri í útflutningsdeild Samskipa. Hann er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri þaðan sem hann útskrifaðist árið 2000. Maki Birgis er Ásthildur Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau tvær dætur.

Gunnar Kvaran, sem nú tekur sæti framkvæmdastjórn og stýrir útflutningssviði, hefur starfað hjá Samskipum óslitið frá 1995. Frá 2007 hefur Gunnar verið forstöðumaður útflutningsdeildar. Þar áður var hann forstöðumaður á skrifstofum Samskipa í Bandaríkjunum. Gunnar er menntaður kennari frá Kennaraháskóla Íslands 1997. Maki hans er Ásdís Björk Jónsdóttir kennari og eiga þau þrjár dætur.

„Með breytingunum undirstrikum við áherslu Samskipa á getu til að bregðast við og svara þörfum viðskiptavina um leið og stutt er við rekstrarlega færni,“ segir Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa á Íslandi. „Nýtt skipurit ýtir undir að þjónusta og undirliggjandi verklag þróist hraðar og í takt við bæði þarfir viðskiptavina fyrirtækisins og tækifærin sem til verða í síkviku rekstrarumhverfi. Drifkraftur þróunarinnar er að búa til virðisauka fyrir viðskiptavini Samskipa og styrkja með því samkeppnisstöðu þeirra, um leið og náð er markmiðum fyrirtækisins um vöxt, aukna hagkvæmni og bætta afkomu.“