Valgerður Gunnarsdóttir hefur verið skipuð skólameistari Framhaldsskólans á Húsavík. Að fenginni umsögn skólanefndar Framhaldsskólans á Húsavík hefur Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ákveðið að skipa Valgerði í embættið en skipað er til fimm ára frá og með 1. ágúst 2018. Tvær umsóknir bárust um embættið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mennta- og menningamálaráðuneytinu.

Valgerður lauk B.A. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands, námi í kennslu- og uppeldisfræði frá Háskólanum á Akureyri og diplómanámi í stjórnun og forystu í skólaumhverfi frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Valgerður hefur víðtæka reynslu af skólastarfi sem kennari, námsráðgjafi, deildarstjóri í Framhaldsskólanum á Húsavík og skólameistari Framhalds¬skólans á Laugum.

Valgerður hefur einnig víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum sem bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar. Hún hefur enn fremur gegnt ýmsum trúnaðar¬störfum, þar á meðal formennsku í Skólameistarafélagi Íslands, setið í stjórn Útgerðarfélagsins Höfða og í stjórn Menningarsjóðs þingeyskra kvenna. Valgerður sat á Alþingi 2013-2017 og var formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis 2016-2017. Hún hefur verið varaþingmaður frá í maí 2018.

Lilja nýr skólameistari Verkemenntaskóla Austurlands

Lilja Guðný Jóhannesdóttur hefur verið skipuð skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands. Að fenginni umsögn skólanefndar Verkmenntaskóla Austurlands hefur Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ákveðið að skipa Lilju Guðnýju í embættið en skipað er til fimm ára frá og með 1. ágúst 2018. Ein umsókn barst um starfið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Mennta- og menningamálaráðuneytinu.

Lilja Guðný Jóhannesdóttir hefur lokið M.Ed. námi frá Háskóla Íslands, auk viðbótarnáms í stjórnun og mati menntastofnana frá sama skóla. Hún hefur víðtæka kennslureynslu á grunn- og framhaldsskólastigi, auk þess sem hún hefur sinnt kennslu í framhaldsfræðslu. Hún hefur starfað við Verkmenntaskóla Austurlands undanfarin sex ár sem framhaldsskólakennari og verkefnastjóri.