Embætti tveggja skrifstofustjóra hjá dómsmálaráðuneytinu voru auglýst 16. júní síðastliðinn og bárust alls 33 umsóknir. Þrír umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka að því er kemur fram í frétt ráðuneytisins .

Niðurstaða valnefndar sem dómsmálaráðherra skipaði var að mæla með 6 umsækjendum sem teldust hæfastir til að gegna embættunum. Þeirra á meðal voru þær Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri hjá umboðsmanni Alþingis, og Ragna Bjarnadóttir, lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu. Dómsmálaráðherra mun á næstu dögum skipa þær í stöður skrifstofustjóra.

Berglind Bára Sigurjónsdóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og hóf í kjölfarið störf sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. Frá árinu 2010 hefur hún starfað sem löglærður skrifstofustjóri hjá embættinu. Hún hefur jafnframt verið stundakennari á ýmsum námskeiðum á meistarastigi við lagadeild HÍ, stjórnmálafræðideild HÍ og hjá Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Ragna Bjarnadóttir lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2006 og meistaraprófi frá Oxfordháskóla 2009. Ragna var aðstoðarsaksóknari hjá embætti ríkissaksóknara árin 2006 til 2008, aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 2009-2010, var lögfræðingur hjá Mannréttindasdómstóli Evrópu 2011 til 2014 og hefur verið stundakennari við lagadeildir HÍ og Háskólans í Reykjavík. Frá árinu 2016 hefur Ragna starfað sem lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu, nú dómsmálaráðuneytinu.