Guðlaugur Maggi Einarsson hefur verið ráðinn yfirmaður hönnunardeildar hjá H:N Markaðssamskiptum. Guðlaugur, sem er best þekktur sem Gulli Maggi, hefur komið víða við en hann hóf ferilinn sem leikmyndahönnuður, fór þaðan á auglýsingastofur sem auglýsingateiknari og hefur fengist við að hanna umgjörð ýmissa viðburða og sýningar upp á síðkastið.

Einnig hefur Einar Guðmundsson verið ráðinn til H:N sem grafískur hönnuður. Einar lauk námi í grafískri hönnun frá Listaháskólanum síðastliðið haust. H:N markaðssamskipti er með elstu auglýsingastofum landsins, var stofnuð árið 1991 og þar starfa í dag 20 manns.