Arnar Hreinsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Landsbankans í Reykjanesbæ og Berglind Rut Hauksdóttir hefur verið ráðin útibússtjóri Landsbankans í Hafnarfirði.

Bæði hafa þau hafa unnið hjá Landsbankanum um margra ára skeið, en Arnar starfar nú sem útibússtjóri í Hafnarfirði en Berglind Rut er aðstoðarútibússtjóri bankans í Reykjanesbæ.

Arnar varð aðstoðarútibússtjóri 2012

„Arnar er með BA-próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, M.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í stjórnmálafræði frá Aarhus Universitet í Danmörku. Hann er einnig löggiltur verðbréfamiðlari.

Arnar hóf störf í Landsbankanum árið 2000. Hann var m.a. sérfræðingur í markaðsdeild bankans, sérfræðingur í fyrirtækjaviðskiptum og forstöðumaður á sölu- og markaðssviði um tveggja ára skeið.

Eftir samruna Landsbankans og SpKef stýrði Arnar um skeið fyrirtækjaþjónustu útibúsins í Reykjanesbæ. Arnar varð aðstoðarútibússtjóri í Hafnarfirði árið 2012 og tók við starfi útibússtjóra í Hafnarfirði í upphafi árs 2014. Hann tekur við stjórn útibús Landsbankans í Reykjanesbæ 15. desember nk,“ segir í tilkynningunni.

Berglind Rut Hauksdóttir
Berglind Rut Hauksdóttir

Berglind varð aðstoðarútibússtjóri árið 2006

„Berglind Rut Hauksdóttir er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri og lýkur brátt námi til vottunar sem fjármálaráðgjafi.

Berglind var fastráðin hjá Landsbankanum árið 1995, þá sem gjaldkeri í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Hún vann síðar í skuldabréfadeild útibúsins í Reykjanesbæ, sem þjónustufulltrúi og sérfræðingur í einstaklingsviðskiptum.

Berglind tók við starfi aðstoðarútibússtjóra í Reykjanesbæ árið 2006 og mun taka við stjórn útibús Landsbankans í Hafnarfirði 15. desember nk.“