Njörður Tómasson hefur verið ráðinn yfirmaður sölusviðs og viðskiptaþróunar hjá Símafélaginu.

Í tilkynningu segir að um sé að ræða nýtt starf hjá ört vaxandi félagi. Símafélagið veitir fyrirtækjaþjónustu og heildsölu þjónustu á helstu sviðum fjarskipta, meðal annars talsímaþjónustu, IP símaþjónustu, farsímaþjónustu, gagnasambönd og Internetþónustu.

Þá hefur Guðmundur B. Gíslason tekið við stöðu yfirmanns þjónustusviðs hjá Símafélaginu en hann tók við starfinu nú í janúar.