Tveir voru með allar fimm tölurnar réttar í lottóútdrætti kvöldsins. Potturinn var áttfaldur en það hafði aldrei gerst áður í sögu lottósins á Íslandi. Alls voru um 140 milljónir í pottinum sem er nýtt met.

Vinningshafarnir tveir fá um 70 milljónir króna í sinn hlut. Þrátt fyrir þennan risapott stendur enn eitt met því hæsti vinningur sem einstaklingur hefur fengið í íslenska lottóinu eru 80 milljónir króna.

Tölur kvöldsins voru: 29 - 1 - 6 - 15 - 23 og bónustalan var 36.