TVG-Zimsen hefur opnað skrifstofu í Hafnarfirði. Fyrirtækið keypti á dögunum skipamiðlunina Gáru þar í bæ sem hefur þjónustað skemmtiferðaskip og togara í Hafnarfirði og um allt land undanfarin 20 ár.
„Þetta er raunar eðlilegt skref eftir kaupin á Gáru í lok síðustu viku,“ segír Björn Einarsson, forstjóri TVG-Zimsen í tilkynningu sem fyrirtækið hefur sent frá sér. Hann bendir á að verið sé að efla fókusinn stóru bæjarfélögunum.
„Við sjáum Hafnarfjörð sem mikilvægan markað og viljum vera nær okkar viðskiptavinum þar. Hafnarfjarðarhöfn er ein stærsta og mikilvægasta höfn landsins og við sjáum þar mikil tækifæri,“ segir hann.
Skrifstofa fyrirtækisins er á sama stað og skrifstofa Gáru að Bæjarhrauni 2. Gára verður rekin sem séreining og dótturfélag innan TVG-Zimsen. Fyrri eigendur Gáru munu starfa áfram hjá fyrirtækinu.