Lokið er undirritun tvísköttunarsamnings milli Íslands og Kýpur til að komast hjá tvísköttun og koma í veg fyrir undanskot frá skattlagningu og nær samningurinn til tekjuskatta. Þetta kemur fram í frétt á vef Fjármálaráðuneytisins.

Undirritunin fór fram í sendiráði Kýpur í Stokkhólmi og undirritaði Gunnar Gunnarsson sendiherra samninginn fyrir hönd Íslands en Andreas Kakouris, sendiherra Kýpur í Svíþjóð, fyrir hönd Kýpur.

Helstu efnisatriði samningsins eru þau að samið var um 5% afdráttarskatt af arði ef félagið sem móttekur arðinn á a.m.k. 10% í félaginu sem greiðir arðinn, en í öðrum tilvikum var samið um 10% afdráttarskatt. Þá var samið um 5% afdráttarskatt af þóknunum en vexti má aðeins skattleggja í því ríki þar sem raunverulegur eigandi er heimilisfastur. Samkvæmt samningnum er frádráttaraðferð (credit method) beitt í því skyni að koma í veg fyrir tvísköttun.

Á næstu vikum munu stjórnvöld vinna að fullgildingu samningsins í báðum samningsríkjum. Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2015.