Eigendur flutningafyrirtækisins Tvistsins á Blönduósi hafa ákveðið að selja fyrirtækið til Vörumiðlunar á Sauðárkróki. Tvisturinn er annað flutningafyrirtækið sem Vörumiðlun kaupir á skömmum tíma en áður keyptu þeir flutningafyrirtækið Húnaleið á Skagaströnd segir í frétt vefmiðilsins Húnahornið. Vörumiðlun á Sauðárkróki varð til með samruna Flutningadeildar Kaupfélags Skagfirðinga og Vöruflutninga Magnúsar E. Svavarssonar.

Vörumiðlun á og rekur um tug langflutningabifreiða auk sendibifreiða, lyftara og annars búnaðar.