Icelandair hefur bætt við áætlun sína tveimur aukaflugum til Parísar vegna leiks Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum EM 2016. Flogið verður með 183 sæta Boeing 757 vél Icelandair frá Keflavíkurflugvelli síðdegis á föstudag og síðdegis á laugardag.

Jafnframt verður bætt við tveimur flugum frá París á mánudagsmorgni og þriðjudagsmorgni. Þessi flug verða hluti af almennu leiðakerfi Icelandair og eru komin í sölu á vef Icelandair. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að ef þörf sé á muni Icelandair einnig leigja breiðþotu og bæta við fleiri flugum til Parísar fyrir leikinn í París.