Ákæruvaldið í Færeyjum rannsakar nú mál sem varða tvö færeysk fiskiskip sem grunuð eru um að hafa framið lögbrot í tengslum við fiskveiðar. Í báðum tilfellum hefur ákæruvaldið rökstuddan grun um að skipin hafi veitt ólöglega í íslenskri lögsögu með slökkt á fjareftirlitsbúnaði sem sýnir hvar skipin eru stödd. Í einum túrnum kastaði skipstjórinn á Bresti siglingatölvu skipsins í sjóinn á leið til lands.

Vakin er athygli á þessu á vefsíðu Landhelgisgæslunnar. Á heimasíðu dagblaðsins Dimmalætting segir að í blaðinu þann 18. nóvember hafi komið fram að skipin Vesturleiki og Brestir hafi báðir verið teknir af fiskveiðieftirlitinu í Færeyjum og nú hafi borist  upplýsingar um hvaða lögbrot skipstjórarnir verði ákærðir fyrir.

Eins og fyrr segir hefur ákæruvaldið í  báðum tilfellum rökstuddan grun um að skipin hafi veitt ólöglega í íslenskri lögsögu með slökkt á fjareftirlitsbúnaði sem sýnir hvar skipin eru stödd.  Bæði skipstjórinn á Vesturleika og skipstjórinn á Bresti hafa viðurkennt að þeir hafi slökkt og kveikt á fjareftirlitsbúnaðinum. Skipstjórinn á Bresti hefur jafnframt viðurkennt að hafa kastað siglingatölvu Brestis í sjóinn, þegar skipið var á leið til hafnar sunnudaginn 16. nóvember sl.

Skipstjórinn á Bresti var grunaður um ólöglegar fiskveiðar inni í íslenskri lögsögu í janúar 2006 og hefur að öllum líkindum haldið uppteknum hætti.