Tvö ný hót­el á lands­byggðinni munu bæt­ast við keðju Foss­hót­ela í sum­ar. Þessu greinir mbl.is frá.

Um að ræða nýtt hót­el í Franska spít­al­an­um á Fá­skrúðsfirði, Foss­hót­el Aust­fjörðum, sem verður form­lega opnað næstkomandi laug­ar­dag á frönsk­um dög­um. Hót­elið tók til starfa hinn 1. júní sl. og eru þar 26 her­bergi í fyrsta áfanga. Stækk­un er hins vegar áformuð.

Einnig mun end­ur­bætt Foss­hót­el Vatna­jökli, skammt frá Höfn, vera opnað en þar var 40 her­bergj­um bætt við og eru þar nú 66 her­bergi