Tvær hópuppsagnir voru tilkynntar til Vinnumálastofnunar í júlí. Samtals misstu 89 manns vinnuna í þessum uppsögnum. Báðar voru hópuppsagnirnar í byggingargeiranum.
Uppsagnirnar eru vegna fyrirsjáanlegs verkefnaskorts að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar.