Vegna mistaka í prentsmiðju enduðu tvær blaðsíður Viðskiptablaðsins í dag einnig í Blaðinu, en það er prentað strax á eftir Viðskiptablaðinu í prentsmiðu Árvakurs. Hér er um að ræða bls. 3 og 22 í Viðskiptablaðinu í dag, annars vegar auglýsing frá Berhard efh. og hins vegar ?Lífið", þar sem greint er frá samkomum liðinnar viku, auk pistilsins Vín í vikulok. Þessar ágætu síður Viðskiptablaðsins prýða því bls. 3 og 38 í Blaðinu í dag. Megi lesendur þess vel njóta.