Fjártæknifyrirtækið Two Birds, hefur fest kaup á Aurbjörgu. Aurbjörg rekur heimasíðu sem aðstoðar fólk við fjármálin sem gerir fólki kleyft að bera saman kjör á lánum, sparnaði, síma, rafmagni og fleiru.

„Þessi kaup á Aurbjörgu styðja við markmið okkar hjá Two Birds að auðvelda fólki að taka betri ákvarðanir þegar kemur að stórum fjármálaákvörðunum, eins og að kaupa sér þak yfir höfuðið, finna hagkvæmasta húsnæðislánið eða fara í endurfjármögnun,“ segir Auður Björk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Two Birds.  „Á Aurbjörgu gerir fólk samanburð á hinum ýmsu þjónustuþáttum sem snúa að heimilisrekstrinum, velur hagstæðan valkost og klárar málin með einföldum hætti.“

„Hugmyndin við stofnun á Aurbjörgu var ávallt að aðstoða  fólk við ákvarðanatöku um hvert það ætti að beina viðskiptum með einföldum samanburði á kaupum og kjörum ólíkra fyrirtækja og stofnana. Nú verður hægt að byggja enn frekar undir það verkefni og gefa einstaklingum og fyrirtækjum kost á að taka upplýsta ákvörðun. Það er því mikið fagnaðarefni fyrir okkur sem stofnuðum Aurbjörgu að sjá þetta frábæra verkefni vaxa og dafna með allri þeirri þekkingu sem liggur hjá Two Birds,“ segir Ólafur Örn Guðmundsson, annar stofnenda Aurbjargar í tilkynningu.

Two Birds var stofnað í maí 2018 og hefur síðan unnið að viðskiptalausnum á fasteigna- og fjármálamarkaði. Félagið býr yfir gagnasafni um fasteignamarkaðinn á Íslandi og notar gervigreind til að reikna áætlað markaðsvirði fasteigna á öllu landinu.