Tyrkneska símafyrirtækið Turkcell hefur gert kauptilboð í kaupréttinn að 65% hlut Novators í Bulgarian Telecommunications Company (BTC), segir í tilkynningu til kauphallarinnar í Istanbúl. Upphæð kauptilboðsins var ekki gefin upp. Turkcell tryggði sér nýlega sambankalán að virði þrír milljarðar Bandaríkjadalir, sem áætlað er að nýta til fyrirtækjakaupa.

Bandaríski fjárfestingabankinn Lehman Brothers var fenginn til að skoða möguleika á sölu á kaupréttinum í byrjun árs í kjölfar áhuga fjárfesta á BTC, en fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar tryggði sér kaupréttinn á síðasta ári. Einnig er reiknað er með tilboðum frá fjárfestingarsjóðunum Mid-Europa Partners, Texas Pacific og Warburg Pincus og tyrkneska símafyrirtækinu Turk Telekom.

Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Advent á eignarhaldsfélagið Viva Ventures, sem heldur utan um hlutinn í BTC, og samkvæmt reglum einkavæðingarnefndar Búlgaríu verður Advent að eiga hlutinn þar til í janúar á næsta ári. Landsbankinn í Lúxemborg er skráður fyrir 13,38% hlut í félaginu og segja heimildarmenn Viðskiptablaðsins að bankinn hýsi hlutinn fyrir þriðja aðila.

Markaðsvirði BTC er um 150 milljarðar íslenskra króna og hefur það hækkað verulega síðan fyrirtækið var einkavætt árið 2004, en þá var verðmæti félagins um 20 milljarðar króna. Áætlað er að ljúka sölunni í júní næstkomandi og talið er að kauptilboð í fyrirtækið í heild sinni nemi allt að 1,9 milljörðum evra, sem samsvarar rúmlega 166 milljörðum króna.
,