Hagnaður leigubílastöðvarinnar BSR nam 12,6 milljónum króna í fyrra, samanborið við 4 milljóna tap árið áður. Kostnaður var svo til óbreyttur milli ára, en tekjur jukust um 29% og námu rúmum 70 milljónum.

Eignir námu 77 milljónum í árslok og eigið fé 1,7 milljónum, en árið áður var það neikvætt um tæpar 11 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall var því 2,2%.

Launakostnaður nam 26 milljónum og lækkaði lítillega þrátt fyrir að ársverkum hafi fjölgað úr fjórum í fimm milli ára. Eigandi félagsins er Guðmundur Börkur Thorarensen.