Bandaríska frumkvöðlafyrirtækið Uber hefur aflað 1,2 milljarða bandaríkjadollara frá fjárfestum sem hefur aukið virði fyrirtækisins um nær 23 milljarða frá því í sumar. BBC News greinir frá málinu.
Fyrirtækið er nú verðmetið á 40 milljarða dollara eftir fjármögnunina, en það jafngildir tæplega 5 þúsund milljörðum íslenskra króna. Eftir hlutafjárútboð fyrirtækisins í júní síðastliðnum var það metið á 17 milljarða dollara, og hefur virði þess því aukist um 23 milljarða á aðeins nokkrum mánuðum.
Travis Kalanick, einn stofnenda Uber, segir að þessir nýju fjármunir félagsins muni nýtast í stækkun þess á Asíumarkaði. Fyrir ári síðan var fyrirtækið með starfsemi í 60 borgum í 21 landi, en núna starfrækir það þjónustu sína í 250 borgum í 50 löndum.
Engar upplýsingar fengust um hverjir séu í hópi hinna nýju fjárfesta, en meðal þeirra sem hafa áður fjárfest í fyrirtækinu eru Goldman Sachs, Google Ventures, Blackrock og Jeff Bezos, stofnandi Amazon.