Stórsýningin Verk og vit verður haldin í fjórða sinn dagana 8.–11. mars 2018 í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Sýningin er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum, mannvirkjagerð og tengdum greinum.

Í viðhorfskönnun sem Outcome-hugbúnaður ehf. gerði fyrir AP almannatengsl á meðal sýnenda á Verki og viti 2016 kom m.a. fram að 95% sýnenda voru ánægð með sýninguna. Þá fannst rúmlega 96% sýnenda að markmiðum þeirra hefði verið náð með þátttöku fyrirtækis þeirra í sýningunni. Þar kom einnig fram að allir sýnendur töldu grundvöll fyrir því að Verk og vit yrði haldin aftur.

Sýningin er ætluð framleiðendum og innflytjendum sem koma að bygginga- og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, s.s. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, hönnuðum og ráðgjöfum. Fyrstu tvo dagana, 8 og 9. mars, verður sýningin opin fyrir fagaðila en helgina 10.–11. mars verður almenningur einnig boðinn velkominn.

Um 100 sýnendur 2016

Um 23.000 gestir sóttu sýninguna í Laugardalshöll árið 2016 þar sem um 100 fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög kynntu vörur sínar og þjónustu. Sem dæmi um sýnendur má nefna byggingarverktaka, verkfræðistofur, tækjaleigur, skóla, fjármálafyrirtæki, ráðgjafarfyrirtæki og sveitarfélög. „Við finnum fyrir miklum áhuga á sýningunni,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar.

„Verk og vit tókst mjög vel til síðast og var mikil ánægja á meðal sýnenda. Skráning er hafin og gengur mjög vel.“ Ingibjörg segir að líkt og Samtök iðnaðarins hafi bent á þá sé afar mikilvægt þegar litið er til næstu missera að ráðast í innviðaframkvæmdir á ýmsum sviðum til þess að undirbyggja hagvöxt til lengri tíma. Í því verkefni er byggingariðnaðurinn í lykilhlutverki.

Fjölbreyttir viðburðir verða haldnir samhliða sýningunni og verða þeir kynntir þegar nær dregur. Skráning er hafin á vef sýningarinnar; www.verkogvit.is. Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.