Mörkin lögmannsstofa, sem er í jafnri eigu sjö lögmanna á stofunni, skilaði 181,3 milljóna króna hagnaði í fyrra, samanborið við 179,4 milljóna króna hagnað árið áður. Í fyrra var allur hagnaður stofunnar greiddur út sem arður og ef það sama verður uppi á teningnum í ár munu hluthafarnir sjö fá hver um sig 25,9 milljónir króna í arð, sem samsvarar um 2,16 milljónum á mánuði.

Eigendur stofunnar eru þeir Einar Þór Sverrisson, Gestur Jónsson, Gunnar Jónsson, Ragnar H. Hall, Gísli Guðni Hall, Geir Gestsson og Hörður Felix Harðarson.