Þau lán sem þarfnast skoðunar í Landsbankanum vegna dóms Hæstaréttar í máli Plastiðjunnar gegn Landsbankanum eru um það bil 30.000 talsins. Vinnunni verður hraðað eins og auðið er og gert er ráð fyrir að bílalánin verði leiðrétt í byrjun júlí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

Málið varðaði bílasamning með ólögmætri gengistryggingu frá 2007. Lánið var endurreiknað árið 2011 miðað við vexti Seðlabankans. Deilt um var forsendur þessa endurreiknings fyrir dómi og taldi Hæstiréttur að við endurreikning væri bankanum óheimilt að krefjast frekari greiðslna en inntar höfðu verið af hendi á því tímabili þegar staðið var í skilum með greiðslu lánsins.

„Landsbankinn hefur beðið eftir þessum dómi og lýsir ánægju með að niðurstaða hefur fengist í málinu. Það er fagnaðarefni að dómurinn eyðir tiltekinni óvissu sem ríkt hefur um endurreikning bílálána. Landsbankinn hefur nú þegar hafið vinnu við að yfirfara endurreikning allra sambærilegra bílalána hjá bankanum. Þar sem við á mun endurreikningurinn verða leiðréttur þannig að hann verði í samræmi við niðurstöðu dómsins,“ segir í tilkynningu frá bankanum.