,,Um 3.300 ferðamenn eru nú þegar búnir að bóka hótel yfir áramótin," segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu.

Erna segir það svipaðan fjölda og árið 2006 en að árið 2007 hafi ferðamenn verið enn fleiri um áramótin, en þá hafi verið algjört metár. Erna kveðst ánægð með þann fjölda sem nú þegar hefur bókað.

Aðspurð um fjölda ferðamanna yfir nýliðin jól segir hún: ,,Það voru heldur fleiri ferðamenn hérna um jólin en árin áður, eða í kringum 1200-1300 manns."