Í mars bárust Vinnumálastofnun 7 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 357 einstaklingum.

Þetta kemur fram á vef vinnumálastofnunar.

Þrjár tilkynningar voru úr fjármálastarfsemi með samtals 84% þeirra sem sagt var upp með þessum hætti, þrjár uppsagnir voru úr verslun og viðgerðum og ein uppsögn úr mannvirkjagerð.

Hins vegar er gert ráð fyrir að hluti þeirra starfsmanna sem missti starf sitt í SPRON fái vinnu við nýjan banka sem yfirtekur að hluta starfsemi SPRON, því gæti heildartala endanlegra uppsagna vegna SPRON lækkað um 50 manns. Einnig er nokkur óvissa með fjölda uppsagna hjá Straumi Burðarási og hvenær þær komi til framkvæmda. Vinnumálastofnun segir heildartölur uppsagna því trúlega vera innan við 300 manns.

Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.