Ferðir Iceland Express voru í 37% tilvika á réttum tíma í júlí og var meðal biðtími 37 mínútur. Hlutfall ferða Icelandair á réttum tíma var 75% og var þurftu farþegar að bíða að meðaltali í 7 mínútur.

Síðan turisti.is birtir stundvísistölur yfir biðtíma flugfélaganna. Á síðasta þriðjungi júnímánaðar fór innan við fimmta hver vél Iceland Express í loftið frá Keflavík á réttum tíma, samkvæmt stundvísistölum Túrista. Forsvarsmenn félagsins báðust opinberlega afsökun og sögðu markmiðið vera að þrjú af hverjum fjórum flugum haldi áætlun. Túristi segir að þá hafi árangur félagsins batnað, en enn sé langt í land að félagið nái markmiði sínu.

Túristi.is .