Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 40,4 milljarða króna viðskiptum.

GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,1% í 12,4 milljarða króna viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,5% í 21,9 milljarða króna viðskiptum.

Í tilkynningu frá GAMMA er vakin athygli á því að velta dagsins var um 26 milljarðar króna ef frá eru talin viðskipti fyrir samtals 14 milljarða króna.  Um þau viðskipti var tilkynnt sérstaklega í Kauphöll en samkvæmt henni heimilaði Kauphöllin í dag tilkynningu á viðskiptum kauphallaraðila sem ljáðst hafði að tilkynna sökum tæknilegra annarka. Um viðskipti er að ræða sem efnd voru á tímabilinu febrúar til loka nóvember sl.