„Það er alls ekki hægt að kvarta yfir aflabrögðunum þegar við höfum getað verið að veiðum vegna veðurs. Vandinn er sá að það er alltaf kolvitlaust veður. Elstu reynsluboltarnir um borð muna ekki annað eins og ég held að ég muni það rétt að búið sé að gefa út 50 stormviðvaranir frá áramótum,“ segir Ævar Jóhannsson, skipstjóri á frystitogaranum Örfirisey RE, er heimasíða Brims ræddi við hann síðdegis í gær.

Örfirisey fór til veiða 2. janúar, að sögn Ævars.

„Við höfum veiðar á Vestfjarðamiðum og byrjuðum á að fá góða ufsaveiði á Halanum. Dvölin á miðunum var þó skemmri en við áttum von á og við hröktumst á brott undan veðri. Austfjarðamið voru eini staðurinn sem hægt var að vera á og við fórum því þangað ásamt miklum fjölda skipa. Veiðin var góð en uppistaða aflans fyrir austan var þorskur sem ekki er okkar kjörtegund,“ segir Ævar og veiðum fyrir austan var því sjálfhætt.

Að sögn Ævars var á þessum tíma gefin út góð veðurspá fyrir Suðvesturmið og menn hugðu því gott til glóðarinnar.

„Þegar til kastanna kom þá rættist ekki spáin og því má segja að allan seinni hluta veiðiferðarinnar höfum við gripið þá dagsparta sem á annað borð hefur verið hægt að stunda veiðar. Aflinn hefur aðallega verið karfi en einnig ufsi. Það er mikið líf í sjónum og við sjáum að það er stutt í að vetrarvertíðin hefjist.“

Að sögn Ævars getur Suðvestan áttin verið rosalega hvöss og erfið.

„Til marks um það má nefna að við lágum í vari inni á Stakksfirði, ekki langt frá Keflavík, í heila fjóra sólarhringa. Ein lægð á dag og hvassviðrið sem fylgir er ekki það versta. Sjólagið er verst og sjórinn nær ekki að ganga niður þó það dúri á milli lægða. Það er búin að vera 9-10 metra ölduhæð samkvæmt baujunni út af Garðskaga í lengri tíma og í slíku ofsaveðri er ekki hægt að stunda veiðar,“ segir Ævar.

Von er á Örfirisey til löndunar í Reykjavík nú í fyrramálið. Aflinn er um 530 tonn af fiski upp úr sjó sem teljast verður góður afli í ljósi þeirra miklu frátafa sem urðu á veiðum vegna veðurs, segir í fréttinni.