Um 62% ferðuðust til útlanda í sumar en utanlandsferðum landsmanna hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Fyrir um átta árum síðan hafði aðeins um þriðjungur landsmanna ferðast til útlanda.

Íbúar höfuðborgarsvæðisins ferðuðust frekar til útlanda í sumar en íbúar landsbyggðarinnar. Fólk sem hefur lokið framhalds- eða háskólaprófi ferðaðist einnig frekar til útlanda en fólk sem hefur ekki framhaldsmenntun að baki.

Loks er fólk líklegra til að hafa ferðast til útlanda í sumar eftir því sem það hefur hærri fjölskyldutekjur. Sú undantekning er þó á, að hópurinn með lægstu fjölskyldutekjurnar er einnig nokkuð líklegur til að hafa farið til útlanda, en sú hefur ekki verið raunin í fyrri mælingum.

Rúmlega 69% Íslendinga ferðaðist innanlands í sumar en innanlandsferðalögum landsmanna hefur fækkað á undanförnum árum samkvæmt Þjóðarpúlsinum. Fólk með háskólapróf er líklegra en aðrir til að hafa ferðast innanlands í sumar.