Alls munu 61 af 77 sveitarfélögum landsins innheimta hámarksútsvar, 13,26 prósent, af íbúum sínum á komandi ári ,eða um 79,2 prósent allra sveitarfélaga landsins. Samkvæmt lögum um tekjustofna sveitarfélaga á útsvar þeirra að vera á bilinu 11,24 prósent til 13,28 prósent. Einungis þrjú sveitarfélög innheimta lágmarksútsvar. Ekkert sveitarfélag lækkar útsvarið á næsta ári en sjö hækka það á milli ára.
Tvö sveitarfélög, Álftanes og Bolungarvík, þurfa að leggja sérstakt álag ofan á hámarksútsvar vegna fjárhagserfiðleika þeirra. Þannig mun 10 prósent álag leggjast á útsvar við álagningu hjá Álftanesi árið 2010 sem leiðir til þess að útsvarshlutfallið verður 14,61 prósent. Hjá Bolvíkingum verður 5 prósent álagi bætt á útsvarið. Útsvarhlutfall þeirra verðru því 13,94 prósent á næsta ári.
Útsvar sveitafélaga árin 2009 og 2010
Sveitarfélag 2009 2010
Reykjavíkurborg 13,03% 13,03%
Kópavogsbær 13,28% 13,28%
Seltjarnarneskaupstaður 12,10% 12,10%
Garðabær 12,46% 12,46%
Hafnarfjarðarkaupstaður 13,28% 13,28%
Sveitarfélagið Álftanes * 13,28% 13,28%
Mosfellsbær 13,03% 13,19%
Kjósarhreppur 12,53% 12,53%
Reykjanesbær 13,28% 13,28%
Grindavíkurbær 13,03% 13,28%
Sandgerðisbær 12,70% 13,10%
Sveitarfélagið Garður 13,03% 13,03%
Sveitarfélagið Vogar 13,03% 13,28%
Akraneskaupstaður 13,28% 13,28%
Skorradalshreppur 11,24% 11,24%
Hvalfjarðarsveit 13,03% 13,03%
Borgarbyggð 13,28% 13,28%
Grundarfjarðarbær 13,28% 13,28%
Helgafellssveit 11,24% 11,24%
Stykkishólmsbær 13,28% 13,28%
Eyja- og Miklaholtshreppur 12,80% 13,03%
Snæfellsbær 13,28% 13,28%
Dalabyggð 13,28% 13,28%
Bolungarvíkurkaupstaður ** 13,28% 13,28%
Ísafjarðarbær 13,28% 13,28%
Reykhólahreppur 13,28% 13,28%
Tálknafjarðarhreppur 13,28% 13,28%
Vesturbyggð 13,28% 13,28%
Súðavíkurhreppur 13,28% 13,28%
Árneshreppur 13,28% 13,28%
Kaldrananeshreppur 13,28% 13,28%
Bæjarhreppur 13,28% 13,28%
Strandabyggð 13,28% 13,28%
Sveitarfélagið Skagafjörður 13,28% 13,28%
Húnaþing vestra 13,28% 13,28%
Blönduósbær 13,28% 13,28%
Sveitarfélagið Skagaströnd 13,28% 13,28%
Skagabyggð 13,28% 13,28%
Húnavatnshreppur 13,28% 13,28%
Akrahreppur 13,28% 13,28%
Akureyrarkaupstaður 13,28% 13,28%
Norðurþing 13,28% 13,28%
Fjallabyggð 13,28% 13,28%
Dalvíkurbyggð 13,28% 13,28%
Arnarneshreppur 13,00% 13,00%
Eyjafjarðarsveit 13,28% 13,28%
Hörgárbyggð 13,28% 13,28%
Svalbarðsstrandarhreppur 13,28% 13,28%
Grýtubakkahreppur 13,28% 13,28%
Skútustaðahreppur 13,28% 13,28%
Tjörneshreppur 12,85% 12,85%
Þingeyjarsveit 13,28% 13,28%
Svalbarðshreppur 13,00% 13,28%
Langanesbyggð 13,28% 13,28%
Seyðisfjarðarkaupstaður 13,28% 13,28%
Fjarðarbyggð 13,28% 13,28%
Vopnafjarðarhreppur 13,28% 13,28%
Fljótsdalshreppur 12,00% 12,00%
Borgarfjarðarhreppur 13,28% 13,28%
Breiðdalshreppur 13,28% 13,28%
Djúpavogshreppur 13,28% 13,28%
Fljótsdalshérað 13,28% 13,28%
Sveitarfélagið Hornarfjörður 13,28% 13,28%
Vestmannaeyjabær 13,28% 13,28%
Sveitarfélagið Árborg 13,28% 13,28%
Mýrdalshreppur 13,28% 13,28%
Skaftárhreppur 13,28% 13,28%
Ásahreppur 11,24% 11,24%
Rangárþing eystra 13,28% 13,28%
Rangárþing ytra 13,28% 13,28%
Hrunamannahreppur 13,28% 13,28%
Hveragerðisbær 13,28% 13,28%
Sveitarfélagið Ölfus 13,03% 13,28%
Grímsnes- og Grafningshreppur 12,74% 12,74%
Skeiða-og Gnúpverjahr. 13,28% 13,28%
Bláskógabyggð 13,28% 13,28%
Flóahreppur 13,28% 13,28%
* Álftanes verður með 10% álag á útsvar við álagningu sem verður þá 14,61%.
** Bolungarvík verður með 5% álag á útsvar við álagningu sem verður þá 13,94%.