Um 90 milljónir króna söfnuðust í átakinu Á allra vörum. Söfnuninni lauk formlega meðí beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu í kvöld.

Söfnunarfénu verður varið í rekstur á stuðningsmiðstöð fyrir langveik börn sem verður til húsa á Austurströnd á Seltjarnarnesi.

Mörg fyrirtæki gáfu muni og aðrar gjafir í húsnæðið og Reitir fasteignafélag lánar samtökunum húsnæðið endurgjaldslaust.

Enn er hægt að gefa til átaksins með millifærslu. Bankaupplýsingar eru: 101-26-55555 og kennitalan er 510608-1350.