Hlutur skatta í bensínverði hérlendis er 50,2%. Hlutfall skatta af verði á díselolíu er 46,5%, samkvæmt gögnum sem fjármálaráðuneytið hefur tekið saman. Í samanburði við Noreg, Danmörku og Svíþjóð er hlutur ríkisins af verði bensíns lægst hérlendis.
Norska ríkið tekur til sín 52,5% af verði bensíns, það danska fær 54,9% og sænska 59,1%. Íslenska ríkið tekur álíka mikið af verði díselolíu til sín og Noregur og Danmörk. Þar er hlutur skatta í verði 46,2% og 46,0%. Sænska ríkið fær hinsvegar 56,4% af verði díselolíu.
Fjármálaráðuneytið bar einnig saman verð á bensíni og díselolíu á Íslandi við verð í öðrum Evrópuríkjum. Mælt er í krónum. Samkvæmt úttektinni er verðið hérlendis það níunda lægsta af alls 22 löndum. Listann má sjá hér að neðan.
Fjallað var um olíuverð á Alþingi í gær og spurði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hvort stjórnvöld ætli að bregðast við hratt hækkandi verði. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði það koma til greina ef hækkanir haldi áfram. Hann greindi einnig frá samanburði fjármálaráðuneytisins. Í umræðum á Alþingi í gær sagði Tryggvi Þór að gögn um samanburð væru góð og gild, en réttast væri að líta einnig til kaupmáttar þegar verð milli landa eru borin saman.
Verð bensíns og díselolíu (kr./lítra)
Land Bensín Dísel
Noregur 281,1 273,8
Holland 264,3 217,9
Danmörk 257,7 235,9
Belgía 248,4 221,1
Svíþjóð 247,6 251,4
Stóra-Bretland 244,3 253,8
Portúgal 242,0 219,4
Finnland 238,7 209,9
Frakkland 237,0 211,5
Ítalía 235,5 216,2
Þýskaland 235,5 216,2
Írland 230,8 222,6
Slóvakía 222,6 205,0
Ísland 221,5 226,4
Tékkland 219,2 214,5
Ungverjaland 215,7 209,7
Sviss 212,1 224,6
Austurríki 206,7 205,0
Slóvenía 205,0 198,1
Spánn 205,0 198,6
Lúxemborg 200,7 182,7
Pólland 193,6 187,4