Viðskiptaráð Íslands kynnti skýrslu um fjármálastöðugleika á Íslandi í Kaupmannahöfn í dag. Á fundinum fjölluðu prófessorarnir dr. Frederic S. Mishkin og dr. Tryggvi Þór Herbertsson um fjármálastöðugleika á Íslandi og svöruðu spurningum frá fundargestum um íslenskt hagkerfi

Eins og kunnugt er hefur verið nokkuð neikvæð umræða um íslensk efnahagsmál í Danmörku, einkum eftir útkomu skýrslu Danske Bank. Fundurinn var þriðji í röðinni en VÍ stóð fyrir fundum í New York og London í maí. Fundargestir í Kaupmannahöfn voru flestir starfsmenn erlendra fjármálastofnana og greiningaraðilar lánshæfismatsfyrirtækja. .

Fram kom í máli dr. Frederic S. Mishkin að hann teldi allan samanburð á Íslandi og nýmarkaðsríkjum afar misráðinn. Hann áréttaði í máli sínu mikilvægi þess að koma áleiðis til greiningaraðila upplýsingum um íslenskt hagkerfi og að hann væri þeirrar skoðunar að mikið af þeirri gagnrýni sem fram hafi komið á síðustu mánuðum hafi að mörgu leiti verið óréttmæt.

Aðspurður sagði dr. Tryggvi Þór Herbertsson að krosseignarhald í íslensku fyrirtækjum væri mjög á undanhaldi og unnið væri að því að draga úr slíku.

Megin niðurstaða höfunda er sú að hverfandi hætta er á fjármálakreppu á Íslandi.

Íslenskt efnahagslíf og stöðugleiki á landinu hafa verið mikið í umræðunni á alþjóðlegum vettvangi að undanförnu og fram kom í máli Höllu Tómasdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, að fundirnir væru innlegg í umræðu um íslenskt hagkerfi og það væri von hennar að hún myndi dýpka umræðuna og ljá henni fræðilega vigt.