Arion banki mun á næstunni endurreikna öll þau lán sem kveða á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur dæmdi ólögleg í nýföllnum dómi í máli Landsbankans gegn Mótormax. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum en þar segir að um nær tvö þúsund lán sé að ræða.

Stefnt er að því að ljúka endurútreikningnum í október en uns honum er lokið verður viðskiptavinum boðið að greiða af lánum með sama hætti og gert hefur verið, þ.e. 10 þúsund krónur af hverri milljón af upphaflegum höfuðstól.

„Samkvæmt dómum Hæstaréttar virðast lán með svokölluðu „jafnvirðisorðalagi", þar sem útgreiðsla láns og greiðsla afborgana sem og vaxta er í íslenskum krónum, vera gengistryggð lán í íslenskum krónum og þar með að hluta til ólögmæt. Hins vegar teljast lán, þar sem fjárhæð hinnar erlendu myntar er tiltekin og útgreiðsla lánsfjárhæðar og greiðsla afborgana og vaxta var gerð í erlendri mynt, vera lán í erlendri mynt og þar með lögmæt erlend lán.

Óvissa ríkir um lögmæti annarra lána þar sem orðalag lánasamningsins og framkvæmd lánveitingarinnar er með öðrum hætti. Arion banki mun áfram leitast við að greiða úr málum hlutaðeigandi einstaklinga og fyrirtækja. Um er að ræða á bilinu tvö til þrjú hundruð lán. Arion banki mun beita sér fyrir því að eyða óvissu varðandi lögmæti þeirra lána og leggja sitt af mörkum til að hraða málum í gegnum dómskerfið eins og frekast er unnt," segir í tilkynningunni.