Nýir bíllyklar með fjarstýringu eru yfirleitt dýrari hjá bílaumboðum en óháðum lykla- og lásasmiðum og stundum verulega dýrari. Þetta sýnir könnun sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda gerði þann 27. nóvember. FÍB gerði grein fyrir niðurstöðunum í skoðanakönnunum sem er svohljóðandi:

Gerð var könnun á því hvað kostar að láta smíða nýjan lykil að fólksbíl með eða án fjarstýringar. Spurt var annarsvegar um hvað sjálfur lykillinn kostar. Hins vegar var spurt hvað nýr lykill með fjarstýringu kostar. Spurt var um verð eftir að búið er að forrita og kóða lykilinn/fjarstýringuna. Niðurstöður könnunar sýna að verðmunur er mjög mikill bæði milli einstakra bílategunda og milli þeirra sem veita þessa þjónustu.

„Spurt var um 24 tegundir bíla í könnuninni af árgerð 2010. Mikill verðmunur reyndist vera milli einstakra bíltegunda hjá umboðunum. Dýrasti lykill með fjarstýringu frá umboði var fyrir Lexus RX450H - 81.140 krónur. Búnaðurinn reyndist ekki fáanlegur hjá lásasmiðunum sem eru Neyðarþjónustan og Lásaþjónustan.

Forsendur könnunarinnar voru þær að spurt var um fullt verð á lyklum ásamt fjarstýringu og verð á einstökum lyklum án fjarstýringar. Verðið skyldi miðast við að allt virkaði og væri tilbúið til notkunar – hvort heldur sem væri fjarstýring og/eða stakur lykill eftir atvikum. Gert var ráð fyrir að þjónustubeiðandi ætti fyrir einn lykil að dyra- og straumlásum bílsins.

Ódýrasti lykill með fjarstýringu frá umboði og sá ódýrasti í þessari könnun er fyrir Chevrolet Spark og kostar 24.813 krónur. Búnaðurinn reyndist ófáanlegur hjá óháðu lásasmiðunum. Næst ódýrasti lykillinn í könnuninni reyndist vera fyrir Suzuki Swift og kostaði 23.500 krónur hjá umboðinu. Hann er heldur ekki í boði hjá óháðu lásasmiðunum.

Sem dæmi um verðmuninn á lyklum með fjarstýringu milli umboðs og óháðu lásasmiðanna má nefna lykil fyrir Toyota Yaris. Hjá Neyðarþjónustunni kostar hann 25.000 krónur. Hjá umboðinu kostar hann 52.318 krónur. Annað dæmi er Mitsubishi Pajero. Hjá Neyðarþjónustunni kostar lykill með fjarstýringu 32.500 krónur en hjá umboðinu 44.812 krónur. Þriðja dæmið er svo Honda CR-V. Lykill með fjarstýringu kostar 27.000 krónur hjá Lásaþjónustunni, 32.500 krónur hjá Neyðarþjónustunni og 66.261 krónur hjá umboðinu.

Að sumum bílum eins og t.d. Mercedes Benz bílum er lykillinn hreinn rafeindalykill en með honum fylgir sérstakt lykiljárn sem er einskonar neyðarlykill til að opna bílinn ef hann er straumlaus. Hjá Neyðarþjónustunni fengust þær upplýsingar að í þeim tilfellum að enginn lykill fyndist að bíl þá bættist við verðið kostnaður við að afla rétts skurðarnúmers frá framleiðanda eða innflytjanda bílsins og rétts kóða til að forrita fjarstýringuna.

Eins og sjá má af könnuninni hér að neðan þá kostar lykill með fjarstýringu fyrir Mazda 2, 66.852 krónur. Lykil án fjarstýringar er hægt að fá á 9.400 krónur hjá Neyðarþjónustunni. Mismunurinn er 57.452 krónur sem segja má með réttu að sé raunverulegt verð fjarstýringarinnar. Athyglisvert er að lykillinn án fjarstýringar kostar í umboðinu 24.242 krónur og er þannig tæpum 15 þúsund krónum dýrari en sami lykill hjá Neyðarþjónustunni.

Annað dæmi er Chervrolet Spark. Lykill að honum með fjarstýringu kostar 24.813 krónur í umboðinu. Lykill án fjarstýringar kostar 10.000 krónur hjá Lásaþjónustunni en fæst ekki í umboðinu. Mismunurinn er 14.813 krónur sem vekur óneitanlega spurningu um það í hverju þessi gríðarlegi kostnaðarmunur milli bíltegunda geti legið.Þegar við berum saman verð á lyklum með fjarstýringu fyrir smábílana Mazda 2 (kr. 66.852) og Chevrolet Spark (kr. 24.813) Þá er verðmunurinn himinhrópandi og illskiljanlegur - rúmlega 42 þúsund krónur.

Aðeins var kannað beinan verðsamanburð á þjónustu en ekki lagt mat á gæði söluaðila.
Öll verð eru með vsk og án alls afsláttar.“