Unnar Steinn Bjarndal hefur tekið við hlutastarfi sem aðjúnkt í lögfræði. Hann lauk ML prófi í lögfræði frá háskólanum á Bifröst 2005.
Unnar Steinn öðlaðist héraðsdómslögmannsréttindi árið 2007 og varð eigandi LS Legal sama ár.
Unnar Steinn öðlaðist KSÍ umboðsmannaréttindi á árinu 2007 og hefur verið ráðgjafi innlendra og erlendra afreksíþróttamanna og íþróttaliða frá þeim tíma.
Hann hefur verið stundakennari við háskólann á Bifröst um skeið.