Bloomberg greiðir blaðamönnum sínum sérstaklega eftir því hvort fréttirnar þeirra hafi áhrif á markaðinn. Þetta er einn sá þáttur sem hefur áhrif á launabónusa blaðamanna, eftir því sem fram kemur í frétt BusinessInsider .

Ekki er algengt að þessi háttur sé hafður á meðal viðskiptablaðamanna og blaðmenn sem BusinessInsider ræddi við segja að þeir hafi ekki haft hugmynd um að þessi háttur væri hafður á hjá Bloomberg. Miðlarar, bankamenn og almannatenglar höfðu heldur ekki hugmynd um að þessi háttur væri hafður á hjá Bloomberg.

BusinessInsider segir að miðlurum hafi brugðið nokkuð við þessar fréttir og haft áhyggjur af því að þarna skapaðist hvati fyrir blaðamenn Bloomberg að ýkja í fréttum sínum til þess að hafa áhrif á markaðina.