Advania hefur fest kaup á norræna fyrirtækinu Visolit, sem er leiðandi á sviði upplýsingatækni og skýjalausna á fyrirtækjamarkaði í Noregi og Svíþjóð.

Visiolit er svipað að stærð og Advania-samstæðan, með um 1200 starfsmenn og starfsstöðvar í Noregi og Svíþjóð. Með kaupum á Visolit tvöfaldast því starfsmannafjöldi Advania. Eftir samrunann verður samstæðan því með um 2400 starfsmenn og velta samstæðunnar um 130 milljarðar króna.

Í fréttatilkynningu um kaupin segir að Advania hafi komist að samkomulagi við IK Investment Partners um kaup Advania á Visolit af IK VII Fund og öðrum hluthöfum. Sjóðir í eigu Goldman Sachs og aðrir hluthafar Advania mumu auka hluti sína í hinu sameinaða norræna upplýsingatæknifyrirtæki auk þess sem IK IX Fund mun koma inn í hluthafahópinn.

Áætlað er að kaupin verði frágengin fyrir árslok 2021 en þau eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda í Noregi og Svíþjóð. Goldman Sachs Bank Europe SE veitti Advania ráðgjöf í kaupferlinu. Raymond James var ráðgjafi Visolit.

Stefna á áframhaldandi öran vöxt

Advania hefur vaxið ört undanfarin ár en á síðasta ári velti samstæðan yfir 70 milljörðum króna, sem er fimmfalt meira en samstæðan velti árið 2015. Vöxturinn hefur ekki síst verið studdur með kaupum á félögum á Norðurlöndunum. Í tilkynningunni kemur fram að stefnt sé á áframhaldandi öran vöxt.

Í tilkynningunni segir að sameinaðir kraftar svo fjölmenns hóps sérfræðinga geri fyrirtækinu kleift að bjóða framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf um upplýsingatækni, sérsniðna að hverjum viðskiptavini. Þá segir að markmið Advania sé eftir sem áður að vera traustur samstarfsaðili fyrirtækja um upplýsingatækni og gera þau í stakk búin til að mæta áskorunum framtíðarinnar með stafrænum lausnum.

Advania vilji þannig áfram vera framúrskarandi vinnustaður og laða til sín hæfileikaríkt fólk með ólíka þekkingu og reynslu. Fyrirtækinu verði dreifstýrt til að tryggja þekkingu á þörfum viðskiptavina í hverju landi.

„Við erum full tilhlökkunar að sameinast Visolit og verða þannig enn öflugra upplýsingatæknifyrirtæki á Norðurlöndunum. Með því að sameina krafta okkar getum við boðið viðskiptavinahópi okkar beggja breiðari og betri þjónustu," er haft eftir Mikael Noaksson, forstjóra Advania á Norðurlöndunum, í tilkynningunni.

Þá segist Terje Mjøs, forstjóri Visolit, spenntur fyrir nýrri vegferð fyrirtækisins með Advania:

„Við erum stolt af uppbyggingu okkar á Visolit siðan 1997 og þeirri stöðu sem við höfum náð í Noregi og Svíþjóð. Með sameiningu við Advania hefjum við nýja og spennandi vegferð á norrænum markaði og getum gert enn betur við viðskiptavini okkar."

Sjá einnig: Risa sala á Advania og Advania kaupir danskt fyrirtæki .