Ingólfur Bender aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins bendir á að vægi byggingariðnaðar í landsframleiðslu hafi tvöfaldast í umfangi frá árinu 2010. Hefur byggingariðnaðurinn á tíma uppsveiflu í tekjum af erlendum ferðamönnum farið úr því að vera ríflega 4% af landsframleiðslu í að vera um 8%.

Þetta kom fram í erindi Ingólfs á Ferðaþjónustudeginum sem haldinn var í Silfurbergi í Hörpu í gær, en það bar yfirskriftina Efnahagsleg fótspor ferðamanna. Þar kemur fram að á síðasta ári hafi heildartekjurnar af ferðamönnunum numið 655 milljörðum króna.

Stóran hluta af auknu vægi byggingariðnaðarins má rekja til aukinna fjárfestinga í ferðaþjónustunni og tengdri starfsemi. Hefur upphæð þeirra numið 263 milljörðum króna á síðustu þremur árum, sem samsvarar um 17% af heildarfjárfestingu í hagkerfinu á þessum tíma.

Er þetta mun hærra hlutfall en í öðrum ríkjum Evrópu, en þar er það um 4,5%. Þannig hafi tekjur af ferðamönnum bætt fjárhagslega stöðu fjölmargra annarra greina hagkerfisins en einungis ferðaþjónustunnar sjálfrar að sögn Ingólfs. Meðal annars hafi fjárfestingar á síðustu 3 árum verið tæplega 98 milljarðar króna í hótelum og 113 milljarðar króna í flugvöllum og flugsamgöngum.

Hann benti einnig á að fjárfesting og viðhald í vegamálum hafi setið eftir í uppbyggingu Íslands sem ferðamannastaðar undanfarin ár. Ríki og sveitarfélög hafi lítið ráðstafað til þeirrar uppbyggingar þrátt fyrir að vegasamgöngur séu nú með tilkomu ferðamanna orðin stærri þáttur í gjaldeyrisöflun og verðmætasköpun þjóðarbúsins en áður.

Hann sagði ferðaþjónustuna hvíla á samgöngum og að nú yrði að fara í stórátak á þessu sviði til efla þjónustu og öryggi ferðamanna og landsmanna allra. Með því væri rennt stoðum undir frekari verðmætasköpun á þessu sviði.