Frá því að bankar og sparisjóðir komu inn á húsnæðislánamarkaðinn hefur umfang útlána með veði í íbúðarhúsnæði vaxið hratt.  Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman og birt á heimasíðu sinni yfirlit yfir þróun útlána með veði í íbúðarhúsnæði. Samkvæmt yfirlitinu hafa lán með veði í íbúðarhúsnæði aukist í krónum talið frá miðju ári 2006 og fram á mitt ár 2007. Aukningin er um 15% hjá viðskiptabönkunum eða úr 289 milljörðum í 330 milljarða króna og um 18% hjá stærstu sparisjóðunum, eða úr 92 milljörðum í 108 milljarða króna. Miklar breytingar á eiginfjárgrunni sparisjóða, m.a. vegna samruna, gera það að verkum að hlutfall þessara lána af eiginfjárgrunni þeirra lækkar frá sama tíma á fyrra ári.