Verulega hefur dregið úr umferð á 14 talningarstöðum Vegagerðarinnar á Hringveginum á þessu ári.

Er þróunin í september 2008 svipuð og undanfarna mánuði, en 4,38 prósentum minni en í september 2007.

Umferðin í september hefur dregist heldur meira saman en í ágúst og júlí þótt mest hafi umferðin dregist saman í júní.

Umferðin í september 2008 var sú sama og í september 2006 og eins og fyrr segir talsvert minni umferð en á sama tíma árið 2007. Hefur umferðin á þjóðvegum landsins dregist verulega saman allt frá því í apríl á þessu ári.

Fram að því hafði verið nær stöðug umferðaraukning að febrúar undanskildum.