Hlutafjárútboði Kaupþings Búnaðarbanka hf. lauk síðastliðinn föstudag. Eigendur 96,38% hlutafjár í bankanum nýttu sér forgangsrétt sinn í útboðinu og skráðu sig fyrir mun fleiri hlutum en í boði voru.

Í boði voru 110.137.128 nýir hlutir á genginu 360 krónur (37,30 sænskar krónur). Söluverð þessara hluta nemur samtals 39.649.366.080 króna. Sá forgangsréttur sem hluthafar nýttu sér ekki flyst til þeirra hluthafa sem óskuðu eftir að kaupa viðbótarhluti, í hlutfalli við hlutafjáreign þeirra í lok 5. júlí 2004, að því er fram kemur í frétt frá KB banka.

Tilgangur hlutafjárútboðsins er að fjármagna kaup Kaupþings Búnaðarbanka hf. á danska bankanum FIH. Í ljósi jákvæðrar niðurstöðu hlutafjárútboðsins, og sölu á víkjandi skuldabréfum í júní síðastliðnum, hefur Kaupþing Búnaðarbanki hf. tryggt fjármögnun kaupanna á FIH. Stefnt er að því að kaupunum verið lokið í september næstkomandi.