Svandís Svavarsdóttir segir að niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur um að ógilda ákvörðun ráðherrans um synjun staðfestingar á skipulagi Flóahrepps sé óskýr og lítið rökstudd. Því ákvað hún að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Samtök atvinnulífsins sendu í dag bréf til forsætisráðherra og kröfðust þess að hann beitti sér gegn áfrýjuninni.
„Umhverfisráðherra segir mikilvægt að Hæstiréttur komist að skýrri niðurstöðu í þessu máli þannig að réttaróvissu verði eytt og réttaröryggi í meðferð skipulags- og byggingarmála verið tryggt,“ segir í tilkynningu frá umhverfisráðherra vegna bréfs formanns SA til forsætisráðherra.
Í tilkynningu til fjölmiðla áréttar Svandís að greiðslusamkomulag milli Landsvirkjunar og Flóahrepps vegna umrædds skipulags hefur verið umdeilt.