Þvert á spár hafa þeir hlutabréfamarkaðir sem opnir eru í Evrópu hækkað nokkuð og meira en menn áttu von á. Dax-vísitalan hafði hækkað um 1,4% um hálfellefu að íslenskum tíma og CAC-vísitlan í París um 0,8% og Euronext um 0,75%. Kauphöllin í London er lokuð í dag og sama gildir um kauphöllina í Bandaríkjunum.